Ókeypis sending ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira

We Women

We Women

Meirihluti starfsmanna í textíliðnaði þar sem fötin okkar eru framleidd eru konur og við höfum skuldbundið okkur því að bæta líf þeirra. Árið 2017 settum við á laggirnar WE Women by Lindex - verkefni þar sem við vinnum að jafnrétti kynjanna í framleiðsluferlinu og  því að skapa sanngjarna og betri vinnustaði. 

WE Women by Lindex er hluti af markmiðum fyrirtækisins til að bæta líf þeirra kvenna sem vinna við framleiðslu á vörum okkar. Í þessu verkefni samþættum við jafnrétti kynjanna inní skipurit framleiðslukeðjunnar til þess að breyta gömlum viðhorfum til stjórnunar- og leiðtogastíls í verksmiðjunum svo konur verði betur upplýstar um rétt sinn og möguleika til þess að setjast í stjórnunarstöður. 

Sú vinna sem verksmiðjueigandinn vinnur í þágu kynjajafnréttis er svo mæld og sett inní sjálfbærni skírteinið okkar sem er síðan  notað til þess að meta framleiðendurna oog hvetja þá til að leggja aukna áherslu á sjálfbærni. 

WE Women by Lindex er þriggja ára þróunarverkefni sem er unnið í samstarfi við  GIZ , BSR og frjáls félagasamtök sveitarfélaga á þeim stöðum  sem framleiðslan fer fram á. Verkefnið mun til að byrja með ná til 33 af framleiðendum okkar í Bangladesh. Verkefnið nær einnig til 10 framleiðanda sem Lindex á ekki í viðskiptum við til þess að kynna hugmyndafræðina fyrir iðnaðinum í Bangladesh. Alls nær verkefnið til 82000 starfsmanna þar sem yfir helmingur er konur. Marmiðið er að stækka verkefnið þannig að  í framtíðinni nái það til allra framleiðanda okkar. 

Um BSR: BSR eru alþjóðleg samtök sem eru ekki  rekinn í hagnaðarskyni (non-profit) og þróa sjálfbærar stefnur í viðskiptum og lausnir í gegnum ráðgjöf, rannsóknir og samstarfsverkefni. BSR er stofnandi HERproject, samstarfsverkefnis sem vinnur að því að efla konur með lág laun sem starfa í alþjóðlegum framleiðslukeðjum. 

Um GIZ: The Deutsche Gesellschaft für Internationale Zusammenarbeit (GIZ) GmbH er sambandsfyrirtæki með starfsstöðvar um allan heim á sviði sjálfbærrar þróunar. Þróunarsamvinnan er framkvæmd af GIZ fyrir hönd þýska viðskiptaráðuneytisins til þess að auka efnahagssamstarf og þróun (BMZ).